Þú veist að það er 2008 ef.....




1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.



2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.



3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .



4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.



6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.



7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.



8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.



9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir  númer fimm.



10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.



11. Svo hlærðu af heimsku þinni.



12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu... 

Aha ekkert svona ég veit  þú féllst fyrir þessu.


Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna

En, ef þú bíður of lengi,
mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En
vinir þínar munu missa af frábærum hlátri

 

 


Lesa...lesa...lesa...

Ég tók þig á orðinu Ásdís og las bókina Karítas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.. Ég keypti þessa bók í fríhöfninni á leiðinni út til Tenerife, hún var vel þykk, þannig að ég hugsaði með mér að ég hefði þá eitthvað að lesa í flugvélinni út og á leiðinni heim aftur. Þar sem krakkarnir vildu vera mikið úti í sundlaugargarði, þá var mjög notalegt að liggja á sólbekk, hafa sólhlífina uppi, sólgleraugun á nefinu og lesa í bók. Bókin var hreint út sagt frábær, snilldarvel skrifuð og ég gat ekki stoppað að lesa hana, þannig að ég kláraði hana á fyrstu 3 dögunum. Gummi hafði keypt sér Harðskafa eftir Arnald, sem betur fer. Þannig að ég kláraði hana líka, fín bók og skemmtilega skrifuð. Þá voru góð ráð dýr, vika eftir af ferðinni og langt heimflug og ég hafði ekkert að lesa. Hitti mína fyrrverandi mágkonu Nönnu, yndislegust. Hún lánaði okkur bækur til að lesa. Ég las einhvern amerískan metsölukrimma 4 júlí, alltí lagi bók en frekar slappt að lesa hana á eftir hinum tveimur. Ekta amerískur krimmi, ástarlýsingarnar fóru einstaklega í taugarnar á mér....kerlan tók alltaf "andköf" í ástarsenunum....hvað er þetta með þessi andköf í amerískum bókum???  Eða er ég að missa af einhverju, eru andköf ómissandi hluti í ástarleikjum;o) hehe... Svo í fríhöfninni á heimleið þá keypti ég framhaldið af Karítas; óreiða á striga og er hún nú á náttborðinu hjá mér...las til klukkan hálfþrjú í nótt. Takk Ásdís mín fyrir að benda mér á þessa snilld.

Hver er þessi Guð?

Börnin mín trúa á Guð. Hafa sennilega ekki um neitt annað að velja, þar sem þau eru aðeins 5 og 7 ára gömul og alin upp við faðir vorið og að jesú og Guð séu til. Þau pæla mikið í jesú og Guð og spyrja mikið um útlit og annað. Einn daginn kom ég að Líneik (hún var þá ca 4-5 ára), okkur hafði eitthvað sinnast og hún rauk grenjandi í fýlu á bakvið sófa. svo heyrði ég í henni þusandi á bakvið sófann eins og að hún væri að tala við einhvern. Eftir smá stund kom hún fram og sagði við mig "mamma, hann Guð svarar mér ekkert þegar ég tala við hann".... það er ekkert alltaf auðvelt að útskýra tilvist Guðs, sem ég hef ekki hugmynd um að sé raunveruleg eða ekki, þannig að ég segi þeim bara það sem að ég haldi og trúi en það sé endilega ekkert það eina sanna. Þau halda að Guð sé karl en svo um daginn fékk ég frábæra spurningu frá JR 5 ára gutta mínum "mamma, er Guð íslenskur"....hum,,,nei elskan ég held ekki, hann er bara svona ...já ef það má deila um að hann sé karl eða kona....hvers lenskur er karlinn ( konan...andinn...hugmyndafræðin)??? En þetta eru skemmtilega pælingar sem spinnast oft í kringum þessa karla!

Annars höfuðum við fjölskyldan það rosa gott í fríinu á Tenerife; sól, sundlaug, mikill hiti, ströndin og sjórinn, allt á sínum stað og alveg yndislegt frí. Það var gott að koma heim og hlakka ég til að fara að flakka um landið í íslenskri útilegu ;o)

 


Sumarfrí!

Er að fara á ströndina, af því tilefni skellti mín sér í litun og plokk, vax að hnjám og bikinivax....ouch...þess virði, þ.e.a.s það það að geta sprangað um í minibrók án þess að eiga á hættu að flækjast í brúsknum og detta útí sjó en dí herlegheitin kostuðu 8500,-  ....Svo ef ég vil einnig vera fín um hárið, nýjar strípur og vel klippt 15000,- kall þar fokinn...en ákvað að spara og leyfa mínum náttúrulega músalit að njóta sín og föndurskærin standa enn fyrir sínu. Svo átti að splæsa á sig nýju bikiní....en nei nei fann ekkert undir 15 þús kalli....læt gömlu garmana duga,,,,,boxer og toppur jette kul...rambaði svo reyndar á einhvern markað og fann pínubrók, svo að vaxið gæti nú notið sín útí ystu æsar...það er nú ekki oft sem músin er alltað því sköllótt....vona að vaxið dugi vikuna áður en rottan mætir í bæinn ;o)

 Gott sumar elskurnar.....heyrumst í haust...


Sniðug komment

Var að lesa sniðug komment sem koma frá Líneik Sóley nú 7 ára og Jóhanni Rökkva nú 5 ára. Kommentin eru öll tekin niður þegar við bjuggum í Svíþjóð þá voru þau á aldrinum 4 og 6.

 

Líneik sóley (mars 2007) var að sýna mömmu sinni holu sem var á skólalóðinni. Hún sagði mömmu sinni að þarna væru risaeðlubein og svo bætti hún við mjög íbyggin á svip og lagði mikla áherslu á "mamma, risaeðlurnar voru sko til fyrir svona 40 árum"

Seinnipartinn í mars (2007) var mjög hlýtt úti og sólin skein glatt, ekta íslenskt sumarveður í Svíþjóð. Mamma og pabbi voru nýbúin að tala um að nú væri notalegt að sitja úti á svölum í kvöldsólinni.Stuttu seinna heyrist í Líneik: oh hvað það væri notalegt að sitja úti á svölum í nætursólinni...
                                                                      
Líneik pirruð
Líneik Sóley var að biðja bróður sinn að koma úta róló. Hann nennti því ekki, þá varð Líneik mjög pirruð og sagði æstum rómi við bróður sinn "þú ert bara letingi, þreytingi og svertingi"...
                                                                                                                                                                    
Mig langar svooo í kisu
Líneik Sóley (jan 07) var að spyrja mömmu sína í hundraðasta skiptið hvort að hún gæti ekki fengið kött. Sama svarið kom frá mömmu, nei. Þá segir Líneik "hey ég veit, þú getur flutt út og ég og pabbi haft köttinn, svo hugsar hún sig um í smástund og fær greinilega enn betri hugmynd og bætir við: og já þú getur tekið Jóhann Rökkva með þér"                     
Búðarleiðangur mömmu
Mamma og Linda systir hennar voru að ræða það að skella sér útí búð, bara tvær án barnanna. þá heyrist í Jóhanni Rökkva "má ég koma með ykkur, mig langar svooo með. Mamma: nei elskan við erum bara að fara í svona leiðinlegar búðir. Jóhann Rökkvi: en ég elska leiðinlegar búðir.
Líneik að rifja upp gamla félaga af leikskólanum
mamma hvað hét aftur strákurinn sem var svona doppóttur og með brúnt hár? mamma: þú meinar freknóttur...já
Áhrif frá teiknimyndum:
Líneik Sóley var að spyrja mömmu sína hvort að fálkar borði mýs og þá heyrist eftirfarandi fullyrðing í Jóhanni Rökkva "konur eru hræddar við mýsur" feminisminn kom uppí mömmu hans sem sagði að það væru líka til menn sem væru hræddir við mýs, neihei heyrist þá í JR hann var sko ekki sammála því.
Jóhann Rökkvi gubbar:
Jóhann Rökkvi vaknar eina nóttina og gubbaði í rúmið hjá mömmu sinni og pabba, á gólfið og víðar. Þegar búið var að þrífa allt og hann líka, stóð þetta litla skinn á baðherbisgólfinu ber að ofan ískaldur eftir þvottinn og veiklulegur þá heyrist í honum kjökrandi "hvernig á að segja gubba á ensku"  (hann var að læra sænskuna á þessum tíma og kallaði það alltaf ensku)
Orðinn hreinn og fínn:
Jóhann Rökkvi fékk að koma í mömmu og pabba rúm eftir að hafa gubbað. Hann kúrði sig á milli okkar og svo tók hann utan um hálsinn á mömmu sinni og sagði "takk mamma fyrir að bjarga mér þegar ég gubbaði" æi hann er svo yndislegur.
óþolandi hreinskilin börn:-)
Jóhann Rökkvi við mömmu sína: "mamma þú borðar mikið af óhollum mat" mamma: "nú afhverju segir þú það?"
JR: "þú ert með svo feitan maga" (sænsku kjötbollurnar farnar að segja til sín)
Líneik að safna fyrir prinsessu búning
Eitthvað gengur söfnunin hægt og aðeins nokkrar krónur komnar í budduna, þá segir hún við pabba sinn: "æi pabbi, nennurðu ekki bara að fara í hraðbanka og fá pening svo ég geti farið að kaupa búninginn"
Jóhann Rökkvi var að fá riddararbúning
Í miðjum riddaraleik í nýja riddararbúningnum sínum, heyrist búkhljóð í litla riddaranum, þá heyrist í Rökkva " úps liddalinn (riddarinn) prumpaði og sagði afsakið"
Mömmur eru litlar
Jóhann Rökkvi er greinilega farin að taka eftir því að algengt sé að mömmur séu minni en pabbar. Einn daginn þá kúrir hann hjá mömmu sinni og segir "mamma, mömmur eru litlar, sko ekki pínkulitlar, heldur svona litlar stórar".
Góð Lykt...
Jóhann Rökkvi lá uppí rúmi að kúra með pabba sínum, með nebbann upp við vangann á pabba sínum, þá heyrist í honum "umm pabbi góð lykt af þér (mamma: hvernig lykt) Jr: svona glæmetis (grænmetislykt)"
Nýkomin til Svíþjóðar
Á 2 degi okkar í Svíþjóð og eftir skemmtilegan dag í Tívolí heyrist í Líneik Sóley alsæl á svipinn "yndislegur bær þessi Svíþjóð"


Bókalestur

Lét mig loksins hafa það að klára Flugdrekahlauparann, eftir Khaled Hosseini, þessa umtöluðu bók sem allir virðast dá og dýrka. Jedúddamía. Ég átti voðalega erfitt með að komast inní hana, var ca 2 mánuði með fyrstu blaðsíðurna og las a.m.k eina aðra bók í millitíðinni. Það voru nokkrir búnir að segja mér að maður væri lengi að komast af stað með hana en svo yrði hún sko góð, svona ca fljótlega eftir að sögupersónan færi frá USA til Afganistan. En eftir þann hluta bókarinnar þá einmitt kom hvert niðurdrepandi "atriðið" á eftir öðru í bókinni, þegar maður hélt að nú væri nóg komið af skelfilegum aðstæðum og það hlyti nú eitthvert smá ljós að skína í lífi sögupersónna,,,nei nei þá gerðist bara eitthvað enn hryllilegra. Ég varð niðurdregin af því að lesa bókina, ég geri mér grein fyrir að þetta gæti allt eins verið sönn saga þar sem aðstæður fólks í Afganistan og víðar í heiminum eru einmitt eins og bókin lýsir. En ég er alla vegna búin að komast að því að ég verð að lesa bækur sem eru ekki alveg svona niðurdrepandi eða alla vegna með góðum endi;o) Ég lifi í draumaheimi!!

Svo las ég þúsund bjartar Sólir eftir sama höfund og þá bók lagði ég ekki frá mér fyrr en ég var búin með hana. Það þykir mér góð bók þrátt fyrir að vera líka niðurdrepandi frásögn en á annan hátt, þarna var vonin einhvern veginn alltaf rauður þráður og pínu góður endir líka... og nú vantar mig nýja bók á náttborðið, einhverjar hugmyndir!

 


Bestu vinir!

Vaknaði í morgun með bullandi flensu. Börnin mín elskuleg sem eru með alveg ótrúlega bjartar og háværar raddir voru að vanda hávaðasöm og þar sem ég var með bullandi bein- og höfuðverk þá var Gummi svo elskulegur og tillitsamur að hann skrapp með þau í heimsókn til tengdó og svo skruppu þau niður í bæ og fengu sér bita af afmælistertu Hafnarfjarðar.

Ég naut friðarins og lá svo steinsofandi uppi í herbergi þegar liðið kom aftur heim. Það fyrsta sem ég heyri niðri í forstofu er þegar litli pungur gargar "mamma,.....hvar er mamma" Gummi segir við hann "uss, mamma er uppi í herbergi sofandi"....þá heyri ég hvar litli kall tekur sprettinn beint uppí herbergi og gargar "maaammma" og svo fæ ég nokkra rembingskossa. Maður nottlega brosti bara og knúsaði drenginn og hann fer fram. Örstuttri stund seinna þá heyri ég þau systkyn rífast um blöðru....je right ein blaðra tvö börn...þau hendast í lofköstum með hendurnar í hárinu á hvort öðru og hlassast í slagsmálunum á dauðveika mömmuna (smá ýkt)....ah ég dæsi, Líneik fer grenjandi inní herbergið sitt og JR leggst grenjandi hjá mér, hann getur bara grenjað hjá mömmu sinni. Ég bið hann að fara inn til Líneikar og spyrja hana hvort þau eigi ekki bara að vera vinir....hann hugsar sig um í smástund og segir svo "nei mamma, megum við ekki bara vera óvinir aðeins lengur"....ekki alveg tilbúinn að taka systur sína í sátt. Jæja friðurinn var alla vegna úti og kom ekki aftur á fyrr en þau voru bæði sofnuð nú í kvöld. Ég ætla að njóta þess þangað til ballið byrjar aftur í fyrramálið þegar stýrin vakna og fara að rífast um hver á að fá hvaða morgunverðaskál, skeið eða guð má vita hvað.... ;o)

 

 


Jahérnahérnahérna...

Dísirnar mínar ég ætla að röfla smá sérstaklega fyrir ykkur ;o)

Það er verst að þegar ég ætlaði að röfla um þetta hérna á blogginu um daginn en þá var síminn bilaður og engin tenging á tölvunni...en ég ætla að athuga hvort að ég komist ekki í "ham" ef ég byrja :o)

Allavegna þá hef ég verið að "pirra" mig á því, eða kannski ekki pirra beinlínis en eitthvað svona nöldra yfir því  hvað foreldrar bekkjarfélaga dóttur minnar (hún er í 2 bekk) virðast ekki margir hverjir hafa neinn áhuga á að hitta eða aðeins að heilsa uppá mann ef börn þeirra eru að koma og leika við Líneik í fyrsta skipti. Ég er sko ekki að tala um kaffiboð og að ég þurfi að vita skónúmer foreldra og hele ættarsöguna...nei nei. En bara svona að þegar þau sæki börnin sín að skokka uppað dyrum og kynna sig og láta sig svo hverfa, það er fínt. Ég get þá tengt andlit og þau hafa kannski svona aðeins séð mig og forstofuna mina, sem bæðevei mætti nú alveg fara að mála. Já nú fatta ég það hefur frést útum allan bæ hvað ég á druslulega forstofu aha og þess vegna lætur fólk ekki sjá sig...hum...neinei.

En ókey þetta er ekkert alvarlegt en það kemur fyrir, til dæmis um daginn þá var bekkjarbróðir Líneikar hérna heima hjá okkur í fyrsta skipti og hann fékk að hringja heim til sín til að biðja mömmu sína að sækja sig...alltíkey...svo fara hann og Líneik útí garð að leika og stuttu seinna hringir heimasíminn..."halló, er nonni þarna...nennurðu að senda hann úti bíl ég er hérna fyrir utan"   dí maður ekki kafna úr leti eða er forstofan mín virkilega svona hroðaleg....  :o)

Svo er það blessaðir bekkjarfélagarnir sem eru komnir með gemmsa....okey í fínu lagi útaf fyrir sig, ég hef ekki enn séð þörfina á því tæki fyrir dóttlu. En um daginn var bekkjarsystir hennar hérna, stelpa sem ég var að koma hingað til okkar í fyrsta skipti og ég hafði aldrei hitt hennar foreldra. Allt í einu hringir gemmsi í vasanum hjá henni og hún segir við mig "má ég vera hérna lengur mamma þarf að  skreppa í Byko".....  dí...má ég tala við mömmu þína...."sæl Fanney heiti ég, mamma Líneikar, ég er sjálf á leiðinni út eftir smástund"....ég meina halló, hvernig væri að fá alla vegna að tala við mig og athuga hvort að barnið mætti vera hérna lengur....

Æi ég veit ekki ég er kannski alveg hroðalega gamaldags, að vilja vita við hverja barnið mitt leikur og ég vil heilsa aðeins uppá foreldrana, svona aðeins.

Ahhhh mikið getur nú verið gott að byrja sunnudaginn á smá röfli, ég er ekki einu sinni búin að hella uppá....en nú ætla ég að skella í könnuna og kíkja á röflið í ykkur hinum, sem ég veit að er reyndar alltaf svooo jákvætt og skemmtilegt að ég byrja að brosa rétt á eftir...

knús elskurnar megið þið eiga góðan sunnudag Kissing


Frjáls eins og fuglinn...

Eins og ég elska börnin mín óendanlega mikið, og hef gaman af þeim (svona yfirleitt), je hvað það er stundum gott að vera laus við þau...eins og til dæmis núna er JR í afmæli og LS í lokahófi (hum byrjar snemma)....og ég nýt þess að hanga í friði, borða nachos og heita sósu og þamba gos....ummmm er það þetta sem fólk talar um hvað það verði nú gott þegar börnin verða eldri (flytja að heiman væntanlega) og maður er "frjáls".....nei varla,,,,en ég hef aldrei fattað þetta dæmi um að hlakka til að  vera frjáls....nema kannski eins og núna "frjáls" í tvo tíma...íha, yndislegt. Mér finnst ég alltaf "frjáls" þó ég eigi ung börn og karl, aldrei fundist ég heft og ekki getað gert það sem mig nokkurn veginn langar til..já bara svona smá pæling...og ég verð sennilega dauðfeginn eftir 30 ár þegar ungarnir fara looooksins úr hreiðrinu og þá á ég eftir að upplifa það að verða FRJÁls hehe.

Eeennn skvísukvöldið okkar bekkjasystra var alveg meiriháttar skemmtilegt, mikið talað og hlegið, nokkuð þambað og lengi vakað. Takk fyrir kvöldið stelpur mínar, þið eruð bestarHeart

Hej då allihoppa...


Mig dreymir um...

Að eyða deginum með börnunum og manni. Dóttlan og maður eru enn sofandi, við Rökkvi elskum það að dúlla okkur tvö ein á meðan. En mig langar á eftir að fara með krakkan uppí Elliðárdal og kenna Rökkva að hjóla, Líneik getur tekið með sér hlaupahjólið. Hún þverneitar að læra að hjóla (orðin 7 ára) því að hún slasaði sig illa á fæti úti í Svíþjóð þegar pabbi hennar var að prufa hjólið sem fylgdi íbúðinni sem við leigðum úti. Hún fékk að vera aftan á bögglaberanum og flækti fótinn í hjólinu og það flettist af húðin innað beini. Þetta gerðist fyrir utan íbúðina okkar, við vorum nýflutt. En sem betur fer voru elskuleg hjón sem sáu þetta á ferð þarna á bíl. Þau skutluðu Gumma og Líneik uppá sjúkrahús. En allt fór vel hún brotnaði ekki. En það var svolítið skrýtið að vera í umhverfi sem maður þekkir ekki og vita ekki einu sinni hvar sjúkrahúsið á staðnum er.

Já hvar var ég, þetta var smá útidúr....en semsagt já mig langar uppí Elliðárdal með familíuna og biðja tengdó að koma með okkur i göngutúr og kíkja svo til þeirra í kaffi. Alltaf jafn gott að fara til tengdó í kaffi, alltaf hlaðborð Grin ekkert verra þótt þau séu flutt úr sveitinni og uppí Breiðholt, alltaf sama yndislega sveitakaffið.

Svo á morgun heldur fjörið áfram en þá ætla ég að hitta bekkjarsystur mínar úr Grundó. Við ætlum að hittast heima hjá Elfu annaðkvöld.....fimm svalar gellur, mojito, brjálaða bína, Duran Duran, Wham....það getur ekki klikkað... Hlakka ekkert smá til og er alveg hrikalega ánægð að vera aftur í sambandi við þessar frábæru stelpur....það hefur að vísu ekki slitnað strengurinn á milli okkar Elfu frá því að við fæddumst (eða ég, hún fæddist tveimur mánuðum á undan) og mun aldrei slitnaHeart

Jæja darlings megið þið eiga góðan 1 maí, vona að allir séu í fríi og njóti samvista við fjölskyldu sína.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband